Ekki nema 29 stiga hiti hérna á gullnu ströndinni, og sjórinn fullur af „sörfurum“. Við ákváðum hins vegar að ganga niður í bæ (7 mínútna gangur) og skoða okkur um. Hér á gullnu ströndinni er Q1 turninn sem er hæðsti íbúarturninn í heiminum.
Uppá 77 og 78 hæð er 360° útsýnispallar fyrir almenning og að sjálfsögðu drifum við okkur upp en lyftan var skotfljót upp. Það var ekkert smá flott útsýni þarna uppi eins og sjá má á myndunum.

Seinniparturinn var síðan notaður til að ganga um bæinn og kynnast kaffihúsum bæjarins (nema hvað, við rákumst auðvita á Starbucks).
Þegar við komum til baka fórum við í sundlaugina við hótelið. Eins og venjulega vekjum við alltaf athygli þegar við fækkum fötum, ekki að við förum úr öllu heldur er það húðliturinn sem vekur athygli. Flestir gera ráð fyrir því að fá smá lit þegar sólin skín allan daginn og hitinn fer ekki undir 27 gráður. Ég líka, nema hvað þegar við byrjuðum að fækka fötum við laugina í dag, var fólki meira starsýnt á okkur en venjulega. Við reyndar kippum okkur ekkert upp við það, því að við höfðum að öllum líkindum tekið góðan lit eftir útiveruna á ströndinni. Drengirnir stungu sér strax í laugina en ég spókaði mig um eftir laugarbakkanum í leit að hinu fullkomna sæti, ekki of mikil sól og ekki of lítil sól. Eftir einn og hálfan hring í kringum laugina, var ég reyndar farin að fara aðeins hjá mér, þar sem ég fann að fólk hreinlega glápti á mig. Sennilega var það þó bara að ég er rétt yfir kjörþyngd og frekar ljós á leggjunum, en aldeilis ekki. Þegar ég settist á bekkinn tók ég eftir að ég hafði svo sannarlega tekið góðan lit, þó ekki brúnan né rauðan, heldur voru fæturnir á mér fagurbláir. Við erum að tala um Sjálfstæðisblátt þið vitið xD blátt. Frá nára og niður eftir miðjum kálfum, hvað var eiginlega í gangi? Ég hef sennilega verið bitin af einhverju óargar skordýri og fæturnir á mér að blána og sennilega detta þeir af að lokum. Nú eru góð ráð dýr, annað hvort að láta eins og ekkert sér og dýfa sér í laugina, eða rjúka inní „lobbý“ og óska eftir að vera flutt á næsta sjúkrahús. Eftir að hafa náð tökum á rökhugsuninni ákvað ég að dýfa mér í laugina og láta eins og ekkert væri. Eftir dágott busl í lauginni dreif ég mig upp úr og viti menn, fæturinir á mér voru ennþá fagurbláir....einmitt.... ég er sennilega komin með mjög alvarlegann sjúkdóm..........en bíddu við handklæðið mitt er líka blátt. Guð sé lof....þetta er þá bara litur...úr nýju fínu gallabuxunum mínum sem ég fjárfesti í fyrir ferðina. Mér er verulega létt.
Mt.Tambourine á morgun
7 comments:
Sjálfstæðibláminn fylgir manni hvert sem maður fer..... :)..... Njótið ykkar vel á ströndinni
kveðja
Lyngrimapakkið
hahahahahíí er í hláturskrampa:-) Dísus Ásgerður! En endilega haltu áfram að skemmta Ástralíubúum og gestum hótelsins ...
Kveðja Maja
Ég segi nú bara eins gott að þetta var sjálfstæðisblátt, ef þetta hefði nú verið vinstri grænt?? Vertu ekkert að taka test á ástralska heilbrigðiskerfinu, í guðanna bænum....
Kveðja
Hjördís
Ásgerður notaðu nú höfuðið og fáðu þér brúnar gallabuxur og í staðinn fyrir að drekka allt þetta starbucks kaffi hvernig væri bara að bera það á sig,þá gæti eitthvað farið að gerast.Pældu í því að borða maura og verða blár á litinn maður bíður bara spenntur eftir því hvað gerist næst.FYLGIST MEÐ Í NÆSTA ÞÆTTI ÞEGAR ÁSGERÐUR SEGIR´´ ..... kær kveðja Goggi
Wow. Geðveikar myndir. Áfram xD.
Love ya,
Magga og Boys
Vá hvað það er gaman hjá ykkur strákar.........
Við erum grænir af öfund!
Kær kveðja,
Egill og Sturla og fjsk.
hæ fjögur fræknu
það er ekki spurning hver skipurleggur næsta frí hjá mér og minni fjölskyldu, þetta er búið ða vera alveg frábært hjá ykkur. Hver er að taka þessu frábæru myndir, ég hélt að ég yrrði ekki eldir þegar ég las um bláu fæturnar þínar Ásgerður, Anton sonur minn sagði að þú færi skemtilegur penni og ættir að skrifa bækur fyrir karakka, ég hlakka til að heira áfram frá ykkur
Post a Comment