Monday, May 5, 2008

Þetta kemur bara fyrir mig.....þó gæti þetta komið fyrir Helgu Bjarts líka :-)

Kæru vinkonur, nú munið þið þekkja mig :-)

Í gær þegar við komum á hótelið eftir að hafa svifið um regnskóginn, þá var hungrið alveg að fara með mig....nema hvað, snakkið sem við höfðum keypt kvöldið áður beið eftir mér á eldhúsborðinu. Græðgin varð rökhugsuninni yfirsterkari og áður en ég vissa var ég búin að renna niður nokkrum flögum, þegar Viðar kemur og ætlar sér að fá hlut í góðgætinu. Hann hætti snarlega við þegar hann sá að í flöguboxinu var maurapartý...............nema hvað ég er sem sagt búin að renna niður einni herdeild af maurum.....shhjállllppppp......er þetta ekki hættulegt?

Eftir að hafa tekið munnskol, hóstamixtúru, brennandi heitt kaffi og tvo lítra af vatni til að reyna að drekkja helv...maurunum var haldið af stað út á pöbb á "happy hour" til að reyna deyfa hryllinginn. Bara til að vera með það á hreinu hvort þetta væri hættulegt, þá spurði Viggi barþjóninn, sem enn liggur í gólfinu af hlátri. Hann gat stunið upp að þetta væri einungis prótein skammtur sem engum yrði meint af.

Ég er allavega búin að prófa próteinbar innfæddra þó svo ég hefði helst vilja sleppa því.........já það er vandlifað í Ástralíu, hvort sem er í háloftum eða á jörðu niðri.

6 comments:

Anonymous said...

hehehehe...úúps, gleymdi alveg að láta þig vita að skilja ekki eftir opin matarílát, þau eru fljót að fyllast af alls konar prótínum! Vertu bara fegin að þetta voru bara maurar;-)

Anonymous said...

hahahaha þetta hefði ég viljað sjá.... sko viðbrögð þín hahah!
kveðja
Ditta

Anonymous said...

Þú hafðir örugglega bara gott af þessu Ásgerður mín! ;)
.... ekki að ég vilji láta þér líða verr yfir þessu.. en gleyptiru þá ekki lifandi ? ...hahahaha:D

Jakob said...

hahahahahah ótrúlega hefur þetta verið skemmtileg lífsreynsla. En ég meina af hverju ekki að prófa :)
Skemmtið ykkur annars vel, ég mun fylgjast með blogginu í próflestrinum.

Anonymous said...

Hæ Hæ Ha Ha eh hehe af hverju geymdirðu snakkið ekki bara úti og hafðir stiga upp í skálina,þá hefðirðu kannski fengið meira djús í þetta. Karólína og Ella senda kærar kveðjur og þakka fyrir dýramyndirnar.Við ferðumst með ykkur á blogginu frábært og höfum snakkskálina opna á stofuborðinu.Kær kveðja Goggi og fjölskylda

Anonymous said...

Eins og þú veist þá borðar maður aldrei of mikið af próteini mín kæra :) Bara skola þessu niður með maurablóði (campari)

Kveðja
Hjördís