.....í bíómyndinni „Lord of the ring“ – Hringadróttin sögu. Myndin var öll tekin upp á Nýja Sjálandi og fórum við á nokkra tökustaði í dag í fylgd heimamanns (kiwi manns). Eins og þeir vita sem hafa séð myndirnar þá er landslagið oft á tíðum stórfenglegt en þó jafnframt draumkennt, sem hefur sínar skýringar.
Tökur á myndunum tóku 18 mánuði og þá er ekki talinn tíminn sem fór í undirbúning og frágang á sviðsmyndum. Wellington var því undirlögð af fólki sem vann við myndina (leikarar, tæknilið og allt sem þessu fylgir) þennann tíma. Viggo Mortensen, var einn þeirra aðila sem lifðu sig algjörlega inn í hlutverkið og gekk hann um bæinn, á milli taka, með sverðið um sig miðjan. Peter Jackson leikstjóri var með 4 aðila í fullu starfi að leita að tökustöðum fyrir myndina, en þegar maður sér myndirnar þá heldur maður að þetta sé allt saman af svipuðum slóðum. Flestir tökustaðir eru ólíkir því sem maður sér í myndinni, því að það er búið að tölvuvinna stórann hluta af myndinni, þó mátti sjá í dag nokkur atriði sem maður kannaðist við úr myndinni. Þó voru fleiri staðir sem maður kannaðist ekkert við þó svo þeir hefðu spilað stóra rullu í myndunum. Tré voru færð til (og við erum ekki að tala um runna, heldur risastór tré), hallir og kastalar byggðir og allt úr frauðplasti (ekkert mál í dag að búa til sviðsmynd). Það var meira segja farið í smáatriði eins og að búa til stærri og meira glansandi laufblöð á trén svo það sæist betur í mynd (kom on).
Eftir hobbita, álfa, orka og svarta riddara fórum við á eitt flottasta safn sem við höfum komið á og eru þau orðin nokkur. Þetta safn heitir „Te papa Tongarewa“ sem útleggst „Þar sem fjársjóður liggur“ www. tepapa.govt.nz þar mátti sjá allt sem tengist Nýja Sjálandi frá upphafi til dagsins í dag, hvort sem það snérist um jarðfræði, náttúru, frumbyggja, verslun, menntun, list............stríð og allt þar á milli. Þetta er svona safn þar sem fræðslan er gagnvirk, það mátti fikta í nánast öllu og hentaði það fjölskyldunni vel. Því miður mátti ekki taka neinar myndir á safninu, því verðið þið bara að kíkja á heimasíðuna þeirra ef þið hafið áhuga.
Í tilefni þess að Ísland komst áfram í aðalkeppni Eurovision þá fórum við á flottan Indverskan stað „Great India“ og fengum þar frábæran mat og þjónustu á Indverskan máta, dari bar. Við segjum áfram Ísland, koma svo með Eurobikarinn heim.
Á morgun munum við svo fara yfir á suðureyjuna, með Nýsjálenskum „Herjólfi“ - sjóveikipillur verða örugglega bruddar til að koma í veg fyrir veislu hjá fiskunum.
Á morgun munum við svo fara yfir á suðureyjuna, með Nýsjálenskum „Herjólfi“ - sjóveikipillur verða örugglega bruddar til að koma í veg fyrir veislu hjá fiskunum.
5 comments:
Elsku besta Ásgerður "Yfirfrænka" innilega til hamingju með stórafmælið í dag :) - njóttu dagsins og ég hlakka mikið til að sjá ykkur þegar þið komið heim.
kveðja
Hildur Ása.
p.s. ég er með 2 lausar tennur og er að fara að sýna á fimleikasýningu hjá Ármann í dag. Vildi að þið gætuð séð en pabbi tekur þetta upp.
kveðja aftur
Hildur Ása
Kæra vinkona!
Hjartans hamingjuóskir með
=sum(18+56+90-156+78+4-10)/2 árin
Knús og kossar við heimkomu!!
Jeij!!! Hurra hurra hurra.... til hamingju fallega Asgerdur min... Eigdu yndislegan dag og lattu nu alla stjana vid thig, thvi i dag er dagurinn thinn:)
thetta litur ut eins og ferd lifsins, alveg aedi... knus til mannanna thinna:)
ast thin margret seema
Innilegar hamingjuóskir með afmælisdaginn elsku Ásgerður. Njóttu dagsins vel og lengi. Þrjú stór knús alla leið til þín. (2 úr Hafnarfirði og 1 frá Köben). Ástarkveðjur, Elma Dís, Viðar og Ester.
P.s. Elma Dís fékk póstkortið sitt í dag. Kærar þakkir.
Elsku Ásgerður til hammó með ammó.
Ég hef nú ekki spurt Gunnar hvað hann haldi að þú sért gömul núna ha ha ha
En bestu kveðjur til ykkar allra frá okkur í Foldahrauninu í Vestmannaeyjum
Post a Comment