Kæru vinir og vandamenn
Sidney, er borg sem engin ætti að láta fram hjá sér fara. Hún er bara frábær, algjörlega "breath taking" eins og sagt hér í Ástralíu. Við upplifðum þetta öll, hún minnir okkur örlítið á New York, svolítið á Boston og svo er hún líka pínu pons Evrópsk. Erfitt að lýsa þessu, myndirnar geta vonandi varpað betra ljósi á þetta.
Við fórum í siglingu um höfnina í morgun (2,5 klukkustund) langur tími, já, en höfnin er alveg einstaklega stór (vel af meistaranum gerð), þetta er stærsta náttúrulega höfn í heiminum, full af ranghölum, víkum og litlum ströndum. Mikið af ríka fólkinu býr niður við ströndina, þar sem húsin kosta vel á annað hundrað milljónir (fer eftir styrk krónunnar).
Höfnin er morandi full af hákörlum, þar eru helstu útungunarsvæði, og eina leiðin til að fara í sjóin hér er að vera innan hákarlaneta, sem eru þó ekki 100% trygg. Við slepptum allavega sjósundinu í dag.
Eftir siglinguna gengum við frá höfninni upp í bæ, gegnum "business" hverfið, við komum líka við í einni Verðbréfahöll til að kíkja á Ástralska markaðinn og við gátum ekki betur séð en að Westpac sé að gera yfirtökutilboð á öðrum banka, er það rétt? Eftir að hafa fengið nóg af jakkafötum, röltum við í gegnum verslunarhverfið og sáum reyndar nokkrar skóbúðir á leiðinni, það verður upplýst síðar hvort eitthvað var keypt.
Enduðum daginn á að skella okkur í bíó með strákana að sjá Iron man.....fín mynd. Ekki búið að ákveða hvað við gerum á morgun, en það verður eflaust enn eitt ævintýrið :-)
5 comments:
Face it, Ástralía er frábært land:-) og jú, mikið rétt, Westpac (gamli bankinn minn;-) ætlar sér að yfirtaka St.George Bank...ég vildi að ég hefði ekki selt hlutabréfin mín í WBC í den! Haldið áfram að hafa gaman;-)
Geðveikt! Sé að ykkur leiðist ekki neitt, ekki leiðinlegt!
Óperuhúsið á ekki að skella sér á sýningu ? he,he
Ásgerður hvað ert þú að gera í peysu og jakka í yfir 20 stiga hita og sól?
Maja
Missi ekki af ykkar daglegu ævintýrum - svei mér þá ef ég er ekki aðeins farin að losna frá sófanum......
Kveðja
Hjördís
Æðislegar myndir, Arnar fékk alveg illt í magann af spenningi þegar hann sá myndirnar frá Draumaveröld barna og Vigga :)
Gaman að fylgjast með ykkur ..
Kv Kidda
Kveðja frá Köben.... sumar og sól hérna megin :o)og H&M aðeins tómlegt eftir mig ahahaha!!
Ditta
Post a Comment