Gott ef ekki, okkur sýnist þau vera jafnblá og Bláfjöllin heima á Íslandi. Í dag fórum við af stað í líka þessum flottu rútu, 5 stjörnu stendur í bæklingnum, við vorum ca 35 í hóp sem hélt af stað í vestur frá Sidney. Þoka lá yfir borginni og allir flugvellir lokaðir, en förinni var heitið í Bláfjöll Ástralllallalnna, með viðkomu í Olympíu þorpinu (en fyrir þá sem ekki vita, héldu Ástralir Olympíuleikana árið 2000, þetta vissi ég því að Sigga frænka var á leikunum). Á leiðinni stoppuðum við í litlu þorpi Leura og fengum okkur kaffi og alveg geðveikt bananabrauð. Því næst var haldið til "Echo Point"
Við höfðum síðan val um tvo aðra ferðamáta upp fjallið til baka og það voru..........já skíðabox af stærri gerðinni (en vírarnir voru alveg jafn grannir og í litlu boxunum) eða skíðabox af minni gerðinni. Ég valdi að sjálfsögðu að fara afturábak upp 52 gráður með lestinni með strákana en Viggi valdi stóra boxið. Við tókum líka einn hring í regnskóginum, innan um öll dýrin sem þar búa.....meirihlutinn af þeim er með fleiri en 4 lappir. Það verður að segjast að útsýnið þarna uppi var alveg frábært, og þetta er eiginlega besta regnskógaferðin okkar.
Til að toppa daginn fóru þeir feðgar Ásgeir og Viggi, eina salíbunu yfir 370 metra hátt gil í skíðaboxi með glærum botni (oohhhh hvað ég missti af miklu).
Allir voru dauðþreyttir þegar við komum til baka á hótelið, enda hafði ferðin tekið 12 klukkutíma. Á morgun er síðasti dagurinn okkar í þessari frábæru borg Sidney.
Rock on
3 comments:
Frábært! þetta vissi ég ekki.
En Ásgerður vissir þú að Ástralía
er jafn stór og 5.515 Færeyjar!
Kveðja Sweden.
Ég fékk bara illt í magann við að fá sjá myndina af Ásgeiri á þessu glæru gólfi, ekki fyrir mig takk :)
kv. Kidda
ja eitt veit ég - ég væri bara frosin úr hræðslu ef ég ætti að fara í alla þessa kláfa og lestir í hundruðum metra hæðum.... já NEI takk!! en njótið ykkar vel þessa síðustu klukkustundir í Sidney :o) hlökkum til að fá sögur og myndir frá Miðju Jarðar í Nýja Sjálandi
kveðja
Lyngrimapakkið
Post a Comment