Við vorum komin á fætur fyrir allar aldir í morgun, ástæðan var, að það er engum holt að sofa út í fríinu. Nei, nei við vorum á leiðinni út á Santosa sem er eyja sunnan við Singapore "eyjuna". Á eyjunni er sædýrasafn Singapore og þar kemst maður mjög nálægt sjávardýrum eins og gaddaskötum af ýmsum stærðum og gerðum, alls konar fiskum og hákörlum (en ekki hákerlingum). Þessum sjávardýrum má klappa af vild. Fyrir húsfrúnni er einungis litið á þessi dýr sem mat en ekki gæludýr sem má klappa.
Við fórum að sjá bleika höfrunga leika listir sínar í lóni á eyjunni, ekki spyrja af hverju þeir eru bleikir, þeir eru bara bleikir hér í Asíu.
Ferðinni lauk síðan með kláfaferð frá eyjunni í land, þar sem svifið var í 80 metra hæð (í eldgamalli skíðalyftu) yfir grýtta jörð og skýjakljúfa. Því miður náðust engar myndir á leiðinni því að myndasmiðurinn gat sig hvergi hreyft vegna hræðslu. Þegar dollan loksins opnaðist flaut myndasmiðurinn út í eigin svita og við hinir á eftir. Ég mæli ekki með þessum ferðamáta.
Læt bara mynd af sæhesti fylgja í staðinn fyrir myndir úr háloftum
1 comment:
Hvað er þetta með þessa hæð hjá ykkur..... ?? ég væri bara dáin!
kveðja
Ditts
Post a Comment