Thursday, May 1, 2014

Fjögur fræknu og þrjú þrusugóð plana för til Vestursheims


Kæru vinir og ættingjar, nú er loksins, loksins komið að því, ferðin sem ákveðin var 2008 er að verða að veruleika (með smá breytingum frá upphaflegu plani).

 
Yfirskriftin var "Hjólað þvert yfir Ameríku"  einhverjir kannast við að hafa heyrt um Route 66 og það er einmitt leiðin sem við ákváðum að fara.



Það sem hefur reyndar breyst frá því herrans ári 2008 er að mannskapurinn hefur elst um nokkur ár og ferðastandardinn hefur líka aukist (hver vill sitja á hjóli rykmettaður í marga daga, ekki ég)



Í stað þess að puða daglangt á hjóli marga daga í röð var tekin ákvörðun um að nýta sér þægindi þess að geta keyrt og sofið á sama staðnum, það hefur svo ótrúlega marga kosti í för með sér að þurfa ekki að vera að pakka saman að morgni ofaní tösku og rífa upp úr henni að kvöldi.


Með þessu ferðaformi er bara hægt að sofa, keyra, sturta sig, gera númer eitt og (kannski númer tvö) á sama staðnum. Getur bara ekki verið betra, það myndast líka svo mikill samhugur þegar allir eru svona nánir.

Eftir ótrúlega marga fundi og atkvæðagreiðslur var ljóst að sennilega yrði þessi ferðamáti ekki til þess að við myndum verja neinum tíma saman í framtíðinni, það væri sennilegra að vina og fjölskyldutengslin myndu bresta. það var því tekin ákvörðun um að aka um sveitirnar í loftkældum bílum og leyfa svo afmælisbörnum ferðarinnar að þeysast um, með flaksandi hárið, hluta af ferðinni.

Drullusokkurinn og Glókollur
Ferðin mun sem sagt hefjast í Denver, stefnan tekin norður á bóginn til suður Dakóda, salt slétturnar verða sleiktar og stefnan tekin í vestur í átt að San Francisco. Því næst verður ströndinni fylgt til suðurs í átt að borg englanna. Þar gerum við ráð fyrir að hitta nokkra góða vini okkar, Georg og nýju kærustuna hans, Arnold og Silla vin hans.
 
Þaðan verður haldið lengra til suðurs og gerum við ráð fyrir að fá okkur eina Margaritu hjá frændum okkar Mexíkönum. Las Vegas er næsta stopp, en þar er spurning um að freista gæfunnar í "twenty one" eða halda sig bara við "slot machine" .  Gljúfrin Miklu verða á vegi okkar þegar stefnan er tekin til austur í átt að Albakörkí  (Albuquerque) og þaðan verður hringnum síðan lokað með nokkura daga verslunarhvíld í Denver. 

Eins og fyrri ár munum við reyna eftir bestu getu að skrá það markverða og skemmtilega sem gerist í ferðinni á síðuna okkar. Við vonum að þið hafið gaman og gagn af.

Ást og friður
Hin Fjögur fræknu og Þrjú þrusugóð


No comments: