Leiðin að Mount Rushmore er mjög falleg, skóglendi og mikið um hlykki í veginum, eitthvað sem mótórhjólaáhugamönnum finnst spennandi, enda voru ansi margir sem nýttu sér þann fararkost. Hér í landi frelsins er algjör óþarfi að nota hlífarfatnað eða hjálma þegar þeyst er um á mótórfákum, hér er bara best að vera á hlýrabolnum og á inniskónum.
Þegar komið var að fjallinu blöstu herramennirnir við okkur, George Washington (1732–1799), Thomas Jefferson (1743–1826), Theodore Roosevelt (1858–1919), og Abraham Lincoln (1809–1865). Upplifunin var ótrúleg, þetta er alveg magnaður staður. þetta verk tók 14 ár í framkvæmd, vinnuaðstæður hrikalegar og sannalega ekki ISO vottaðar, vinnutíminn langur og langt frá því að vera innan viðmiða VR. Það er ekki margir verkamenn enn á lífi, en við vorum svo heppin að hitta einn þeirra í fjallinu, en hann er orðin 93 ára gamall.
Eftir að við höfðum gengið um svæðið, andað að okkur kraftinum, bjartsýninni og viljanum til að framkvæma það ómögulega var skálað fyrir Valda í kampavíni og slá á létta strengi.
og auðvita vöktu drengirnir athygli með ýmsum uppstillingum þennann daginn :-)

No comments:
Post a Comment