Friday, May 30, 2014

Devils Tower – Djöflaturninn Wyoming

Eftir frábæra daga í Rapid City í South Dakoda héldum við til vesturs í átt að hinu fræga kennileiti „Devils Tower“, en hann var miðpunktur myndarinna Close encounter of the third kind sem Steven Spielberg leikstýrði. Hún fjallar um sambandi jarðabúa og geimvera en geimskipið lendir einmitt á Devils Tower. Eins og allir muna fóru samskipti geimvera og manna fram í gegnum tónlist.
 

Við ákváðum að endurgera hluta úr myndinni við mikinn fönguð viðstaddra. Við erum sennilega komin í annað hvert myndaalbúm í norður Ameríku, svo vinsæl vorum við. Viggi spilaði stefið úr myndinni á Ipadin á meðan Odda og strákarnir (ungir og aldnir) gerðu heiðarlega tilraun til að ná sambandi við hið óþekkta.

 



Devils tower er jarðfræðilegt undur, en talið er að kvika hafi storknað í gosopinu og í áranna rás hefur fjallið veðrast og eftir stendur stuðlabergs stapi.
 

 
  
Frá Djöflaturninum var stefnan tekin á Salt Lake City, sem sagt úr klóm djöfulsins í fótspór meistarans.

No comments: