Tuesday, May 29, 2012

Timburmenn.......við erum ekki að tala um smiði

OMG.........hver af ykkur var búin að segja mér að alkahól hreinlega gufaði upp í öllum þessum hita...það má vel vera að virki á ykkur en ekki á mig.



Eftir nokkrar töflur af alkaseltser getum við gengið út í daginn, sjóðandi heitan. Það er ekki nema 35 gráður og 80´% alkahól...fyrirgefiði raki átti þetta að vera.

Við byrjuðum á því að fá okkur creólskan morgunmat sem sló rækilega í gegn hjá öllum, fullt að kolvetnum og orku sem dugði okkur fram á kvöldmat. Þá skelltum við okkur í siglingu á Mississippi ánni á gufubát, mjög gaman......drykkirnir um borð eru líka askoti góðir......ávaxtadrykkir með rommi....hikk.


Eins og áður hefur komið fram er New Orleans (borið fram með frönskum hreim) borg tónlistar. Í bátnum var boðið uppá jass frá tímum Gerswin og átti það vel við stemmninguna um borð.
vorum við búin að segja ykkur frá drykkjunum?  jú jú...það var komið




Svo var það samferðafólk okkar þarna um borð........eins og við lendum oft í þá virðumst við skera okkur úr hópnum (ég bara skil ekki af hverju). Þessi yndislega japanska 75 ára kona átti ekki orð yfir hvað þessi fjölskylda væri falleg. Hún vildi endilega búa til fyrir okkur Möggu Origami fugl og gefa okkur. Hún hafði meiri segja komið til Íslands, Reykjavíkur, gaman að þessu





Hér er hljóðfæll  sem gaman er að hlusta á

1 comment:

jona said...

OMG...hlakka svo til að ég er að bilast!

Sjáumst..:)))