Já afmælið hennar Möggu er 28.maí og að sjálfsögðu gerðum við okkur glaðan dag. Við fórum í skoðunarferð út fyrir borgina til að skoða sveitina og sjá hvernig bómullar, sykur og tóbaks bændurnir bjuggu fyrr á öldum. Það sem var líka sérstakt við þennan stað var að bændurnir voru allir hvítir og höfðu hjá sér svarta þræla. Í dag eru flestir bændurnir svartir.
Á leiðinni til baka ókum við frammá "aligator" sem stóð við þjóðveginn og góndi á umferðina. "aligator" er lítill krókodíll. Draumur Róberts varð að veruleika því að hann hafði dreymt um að sjá krókodíl í sínu náttúrulega umhverfi.
Í þessar ferð okkar fundum við líka hús sem voru til sölu og gætu alveg komið til greina sem sumarhús fyrir sólþyrsta Íslendinga. Nú þurfum við bara að byrja að safna og þá getum við fjárfest í einu slíku.
Svo er nauðsynlegt að vera sinn eigin herra og geta komist á milli staða. Kosturinn við miðju húsið er að það fylgja tveir bílar, ástandið á þeim gæti verið betra en það er tiltölulega auðvelt að gera þá gangfæra.
Um kvöldið var sparifatnaðurinn tekinn fram og haldið á Hard Rock Café þar sem við fengum okkur afmælisdrykki og afmælismat. Kvöldið var frábært í góðra vina hópi.
Skál fyrir þér Magga og til hamingju með daginn, we love you
Á leiðinni á hótelið var tekið barrölt og Róbert prófaði "handgrenade" handsprengju á hinu ylhýra. Við hin létum rommið duga.
1 comment:
Hæ.Mér líst vel á húsið með bílunum.Kýlum á það.Gaman að sjá þið skemmtið ykkur vel hikk.Kær kveðja.Goggi
Post a Comment