Tuesday, May 29, 2012

New Orleans tekin með trompi



Hitinn er rosalegur, sem þýðir bara eitt....maður verður að vera duglegur að vökva sjálfan sig, þjóðardrykkur í New Orleans er romm og við vorum dugleg að drekka það í dag. Mikið rosalega er búið að vera gaman.



Við erum búin að labba um franska hverfið "french distric" og á tímabili var alveg ljóst að við vorum komin í öfugan helming af hverfinu. Karlarnir í hverfinu gátu bara ekki haft augun af karlpeningnum í hópnum og við Magga áttu fullt í fangi með að koma þeim á réttan kjöl.  Við ákváðum að skella okkur á barinn og fá okkur Mojhito, eitthvað voru þeir sparsamir á sódavatnið þannig að drykkurinn var ekki lengi að skjótast upp í höfðið á okkur og í kjölfarið var ennþá meira gaman. Þá var komið við á kaffihúsinu Pravda en það er kommonista kaffihús sem boðið er uppá kaffi og absintu en það þótti vinsæll drykkur snemma á 20 öldinni hjá bóhemum í París. Eftir einn snaffs af absintu leið mönnum eins og þeir hefðu neytt hugvíkunarefna.



New Orleans er borg lystisemda hvort sem talað sé um mat, drykk eða skemmtun. Skrúðgöngur eru svo til daglegur viðburður og við stóðumst ekki mátið og keyptum okkur grímur til að taka þátt í einni slíkri. Ekki þurftum við að bíða lengi eftir næstu göngu, ung brúðhjón sem gista á sama hóteli og við héldu eina eftir kvöldmatinn, allir gestirnir í brúðkaupinu og aðrir sem vildu taka þátt gengu frá hótelinu undir lúðrablæstri og taktföstum trommuslætti.



Komið að háttatíma...heyrumst á morgun

No comments: