Friday, May 25, 2012

Dagur tvö í Washington

Ég er ekki frá því að við séum enn á íslenska tímanum því við vorum vöknuð fyrir klukkan 6 í morgun eftir stuttan nætursvefn.  Ég vil ekki meina að þetta sé aldurinn, heldur var „Air condisionið“ aðeins að stríða okkur, tilfinninging var líkari gufubaði en svefnherbergi J



Við byrjuðum daginn á því að leita uppi Walmart, þar sem við ætluðum að kaupa okkur „garmin“ tæki til að komast á milli staða án stóráfalla.  Kvöldið í gær ýtti einmitt undir þá ákvörðun. Fyrst að við vorum á annað borð komin í Walmart var ekki annað hægt en að versla örlítið inn, einn til tveir pakkar af "Fruit loops", mjólk, ávaxtadjús og að sjálfsögðu 1 lítri af ís (með kökudegi), plastglös og skeiðar, hungrið hreinlega að drepa mann. 




Fórum pakksödd og heilsuðum uppá 44 forseta Bandaríkjanna,  Barack Obama, því miður var hann ekki á svæðinu þar sem hann hefur fullt í fangi með að hafa ofan fyrir evrópsku stjórnmálamönnunum sem eru gestir hans þessa daganna í Chigago. Við náðum hins vegar ágætum myndum af fábrotna húsinu hans sem stundum er kallað Hvíta húsið. Hitinn í borginni er hærri en snjóhvítir íslenskir ferðamenn eiga að venjast, svitinn svoleiðis lekur af mönnum og konum, hælsæri, tásæri og hálssæri eru farin að leika menn grátt. Sem betur fer er ekki langt í næsta apótek, en það er eins og allt annað hér risastórt og plástrarnir eftir því.







Kvöldinu var síðan varið á "Cheesecake factory" Ostaköku verksmiðjunni en þaðan fóru allir saddir og sælir frá borði. Myndirnar sem hér fylgja eru meðal annars af einu góðu hláturskasti sem reið yfir borðið þegar líða tók á máltíðina........


No comments: