Thursday, May 17, 2012

USA hér komum við........

Kæru vinir, nú er komið að því að krúsa um Bandaríki norður Ameríku. Áhersla verður lögð á suðurríkin en að sjálfsögðu byrjum við á því að heilsa uppá forsetann Obama og hans fínu frú.

Þaðan mun leið liggja til suðurs og verður næst tekið hús á tónelskum íbúum New Orleans. Einnig verður alveg örugglega bragðað að matnum hjá þeim sem þykir víst einstaklega bragðgóður. Þaðan verður stefnt til austurs á Florida skagann og munum dvelja á honum í 3 vikur. Þaðan mun leiðin liggja til norðurs til Washington til að klára að tæma verslanirnar áður en haldið verður heim.

Við munum halda úti stuttum pistlum á meðan ferð stendur og mun það vonandi veita ykkur ánægju og ylja ykkur um hjartarætur.

Hin fimm fræknu

No comments: