Tuesday, July 21, 2009

Sumarfríið 2009

Þó svo að við vildum gjarnan upplifa ævintýrið "down under" aftur þetta árið, þá höfum við ákveðið að taka íslenska hringinn í ár ;-)
Stefnan er tekin norður í land, nánar tiltekið í sumarhús við Illugastaði í Fnjóskárdal. FIT á bústað þar sem við ætlum að verja einni viku í skoða nágrennið og kíkja á Landsmótið á Akureyri. Í framhaldi af því munum við taka austfirði með trompi og vera í íbúð á Egilsstöðum í 5 daga.
Bara til upplýsingar fyrir þá sem vilja vita þá ætlum við ekki taka neina sénsa og förum því á eigin bíl í ferðalagið. Húsbóndinn verður svo bara á kortabókinni....svo við endum nú ekki bara á Vestfjörðum.

No comments: