Tuesday, July 21, 2009

BANNAÐ

ó já.....loksins komin norður í land...alveg ótrúlegt hvað það tekur alltaf lengri tíma en maður er búin að áætla að komast á áfangastað. Illugastaðir er áfangastaðurinn og við náðum með naumindum þangað á réttum tíma. Á Illugastöðum eru reglur, eða öllu heldur regla....og er hún BANNAÐ...án gríns þá er allt bannað hér. Samkv.upplýsingum sem við fengum frá FIT er bústaðurinn afhentur eftir klukkan 16 á föstudögum..og hefðu maður haldið að það væri þá í lagi að koma á laugardegi eða jafnvel sunnudegi, ónei á Illugastöðum er allt "under control". Þar er gert ráð fyrir að orlofshúsagestir (31 hús á svæðinu) koma á föstudegi milli klukkan 17 og 21 og þá er vegurinn að húsunum opinn svo hægt sé að afferma bílinn, eftir það er honum lokað með keðju og hengilás.

Við komuna fá orlofshúsagestir í hendur tvö blöð, á öðru er manni kennt að nota, þrífa og fylla heita pottinn og á hinu koma fram allir þeir liðir sem bannaðir eru á svæðinu. Að sjálfsögðu er bannað að vera með hunda í orlofshúsunum (og tökum við heilshugar undir þá reglu) en á Illugastöðum er STRANGLEGA BANNAÐ að vera með hunda á svæðinu og lentum við því í svolitlum erfiðleikum með ferfætlingana okkar því að við þurftum að hafa þá í bílnum á meðan við vorum á svæðinu. Við þurftum að fara akandi út af svæðinu til að leyfa þeim að gera þarfir sínar og til að gefa þeim að éta. En að sjálfsögðu gátum við sætt okkur við þetta, enda erum við afspyrnu liðlegt fólk. En þetta var ekki það eina sem var bannað á svæðinu, það er STRANGLEGA BANNAÐ að leika sér með bolta á flötinni í kringum bústaðinn. Í sundlauginni er skilti þar sem fram kemur að gestum laugarinnar sé STRANGLEGA BANNAÐ öskra sem er mjög eðlilegt enda öskra íslensk börn sjaldan þegar þau eru að leika sér. Ölvun og háreysti á svæðinu er STRANGLEGA BÖNNUÐ og einnig er STRANGLEGA BANNAÐ að tjalda á lóðinni við húsin, og því lentu nágrannar okkur í smá vandræðum með stálpuðu unglingana sem vildu vera í tjaldi við hús foreldranna, þegar búið var að tjalda og koma öllu fyrir í tjaldinu birtist Illhugi óðalsbóndi og bannað fjölskyldunni að tjalda við húsin og vísaði þeim umsvifalaust niður á tjaldsvæði sem er í töluverði fjarðlægð frá húsunum. Fjölskyldan gat því ekkert gert annað en borið tjöldin, einn á hverju horni, niður á tjaldsvæði og lögðust unglingarnir til svefns langt frá fjörinu í bústaðinum.....en svona er nú lífið.

No comments: