Tuesday, July 21, 2009

Mamma, hvar varð ég til?

Ásgeir Snær hafði allt í einu mjög mikinn áhuga á að vita hvar hann hafði verið búinn til og spurði ítrekað þrátt fyrir að ég reyndi að breyta um umræðuefni oftar en einu sinni. "Var ég búin til heima, á hóteli eða í bílnum"! Bílnum....hvernig datt drengnum í hug að hann hafi verið búin til í bíl? En við förum ekki nánar út í þessa sálma að sinni, en hann tók af okkur loforð um að fá þessar upplýsingar þegar hann verður fermdur, en hingað til hefur hann haft mjög takmarkaðan áhuga á að láta ferma sig. Hann hefur ekki haft neinn áhuga að fermast í einhverri slæðu og að þurfa syngja söngva fyrr framan alla í kirkjunni ;-)

No comments: