Thursday, April 17, 2008

Áður en haldið er af stað

já, það er sko að mörgu að huga áður en lagt er af stað í langferð. Það eru ferðamannasprauturnar, koma hundunum og elsta barninu fyrir í pössun, pakka réttu hlutunum í réttri röð í töskurnar. Muna eftir hangikjötinu og lifrapylsunni, lopasokkunum og öllu þessu óþarfa sem við tökum alltaf með okkur í ferðalög.



Planið er London, Singapoor, Cairns, Brisbane, Sidney, Auckland, Christchurch, Hongkong, London og heim. Ferðalagið mun taka um 5 vikur og það er ætlast til að maður ferðist ekki með meira en 20 kíló! Guð sé lof að við erum fjögur, því þá get ég puðast með 80 kíló plús handfarangur næstu 5 vikur, inn og út úr flugvélum, upp í lestar, inn og út úr strætó og leigubílum.



Ætlunin er að setja hér inn smá texta og myndir í ferðinni og gefa ykkur kæru vinir og ættingjar tækifæri að fylgjast með ferðinni (það er eins og við séum að fara til tunglsins). Ég vona að við verðum í Internetsambandi við og við, ég hef reyndar heyrt að það sé frekar lítið um netþjóna í henni Ástrallalíu. Þið takið viljan fyrir verkið, því að ótrúlegt en satt þá er þetta fyrsta bloggið okkar hér á heimilinu ;-)

5 comments:

Fjogur fraeknu said...

Vá, en flott hjá þér Ásgerður

hlakka til að heyra meira frá ferðinni :-)

Kveðja Ég sjálf (Ásgerður)

Anonymous said...

Vá þetta mun örugglega vera besta ferð hingað til

Kv. Heimasitjandi sonur í prófum :/

Anonymous said...

dúddi minn þetta verður ekkert smá gaman hjá ykkur :) og þvílíkt ævintýri. Góða ferð og gangi ykkur vel þarna "Down under" :)
kveðja
Lyngrimagengið

Anonymous said...

Elsku vinir! Við munum fylgjast náið með ykkur héðan af horninu í Skerjafirðinum. Passið ykkur á gaddaskötunum :)

Hjördís og Stefán

Goa said...

En gaman að geta fylgst með ykkur "down under"!!
Hafið það gott og bara njótið..:)
Við heyrumst fljótt aftur..:)

Knús og klemma frá okkur í Sverige