Monday, April 28, 2008

Lon og Don

oohhh...við erum að sálast í fótunum. Frá hádegi á laugardag erum við búin að labba London þvera og endilanga. Dýragarðurinn var tekinn út á nokkrum klukkutímum í skínandi sól og mígandi rigningu til skiptis. Oxford og allar hinar götur mældar í fetum og hinn klassíski "sight seeing tour" tekinn í rauðum tveggja hæða strætó þar sem slegist (í orðsins fyllstu merkingu) var um sæti undir skyggni á efri hæðinni, því það rigndi hressilega rétt á meðan við fórum hringinn.
Við erum búin að koma við í "Boots" nokkrum sinnum til að sinna þörfum ferðalanganna, Ásgeir fékk hælsæri, Viðar missteig sig á hótel tröppunum, frúin er búin að fjárfesta í nokkrum flöskum af hóstamixtúru sem allar eru ódrekkandi. Ætli það virki ekki bara best að fá sér konna, hikk.
Nú sitjum við á Heathrow flugvelli og bíðum eftir að ganga um borð í vélina til Singapoor, en þangað verðum við komin á morgun um fimm leytið (seinnipartinn).

Heyrumst síðar :-)

2 comments:

Anonymous said...

oh hvað þetta er mikið stuð hjá ykkur. það er nú ekkert ferðlag nema að maður fá smá hælsæri :)... góða ferð elskurnar og við í Lyngrimanum hlökkum til að heyra frá Singapoor.
kveðja
Ditta og co.

Anonymous said...

Gaman gaman hjá ykkur. Góð ferð. Hlakka til að heyra meira um þessa frábæru ferð. Ástar kveðjur, Margaret og boys.