Wednesday, April 30, 2008

Singapore eða er það Singapoor

Og já við erum komin til Singapore. Það er alveg ótrúlegt hvað 12,5 klukkutímar geta liðið hratt, ferðin gekk alveg ljómandi vel ef undan er skilið flugveikin sem herjaði á Ásgeir síðasta klukkutímann af ferðinni. Flugþjóninn var allur af vilja gerður að aðstoða okkur, kom með blautan klút, nýjan ælupoka (var þó svolítið tregur að taka þann sem var orðin fullur) og stórt vatnsglas sem reyndar endaði eins og það lagði sig í klofinu á mér (Ásgerði), þetta hefur sennilega verið hátt í hálfur lítri sem gusaðist yfir mig.
Eftir lendingu voru greinilega nokkrir farþegar að velta fyrir sér rennblautum rassi sem gekk frá borði, en bara svo þetta sé alveg á hreinu þá var þetta bara vatn ;-)

Þrátt fyrir að vélin hafi tekið hátt í fimmhundruð farþega var engin bið eftir farangri, heldur gekk þetta allt eins og í lygasögu. Við vorum komin uppá hótel rétt um sjöleytið og það fyrsta sem drengirnir vildu gera var að kanna sundlaug hótelsin sem er á 6 hæð, undir berum himni. Allir þeir gestir sem voru á hæðunum þar fyrir ofan (hæðir 7-23) fengu engan svefnfrið fyrir litlu íslendingunum sem skemmtu sér konunglega í lauginni.
Það er um 33° hiti hér að kvöldlagi og frekar mikill raki. Það tekur sennilega einhvern tíma að aðlagast þessu loftslagi, það er eins og maður sé með raka tusku fyrir vitunum.

Það er víst komin háttartími fyrir þreyttar húsmæður, það er smá tímamismunarugl á okkur, sem sennilega verður komið í lag strax á morgun.

1 comment:

Anonymous said...

Qantas - klikkar aldrei;-)
Vona að Ásgeiri líði betur í fluginu til Ástralíu!

bkv. Inga